![]() | ![]() | ![]() | |||||||||||||
ISBN: 1-4137-2221-0
# Pages: 163 pages
Dimensions: 5.83 x 8.27
Format: Softcover
Product Description
Saga um fjölskylduleyndarmál, morð og lygar en ekki síst um ástina og önnur tækifæri. Árum saman hefur Melkorka reynt að gleyma fortíð sinni og þeim skuggalegu atburðum sem hröktu hana frá heimaslóðum. Hún hefur náð að byggja upp farsælan starfsferil í höfuðborginni og lítur björtum augum til framtíðar – þar til hún neyðist einn góðan veðurdag til að snúa aftur og horfast í augu við fortíðina. Á örskömmum tíma er hún umlukin vef myrkraverka og fjölskylduleyn darmála um leið og hún reynir að átta sig á tilfinningum sínum í garð fyrrverandi elskhuga síns. Setið er um líf hennar og hún getur engum treyst. Mun hún ná að leysa gátuna og finna ástina á ný áður en morðingjanum tekst ætlunarverk sitt? Sögusviðið er ímyndaður smábær á norðanverðu Íslandi og er sagan hvort tveggja í senn glæpasaga og ástarsaga, sem lýsir uppgjöri ungrar konu við fortíð sína og leit hennar að farsælli framtíð.